LUKR er samstarfsverkefni Umhverfis- og Skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar (UTR), Orkuveitu Reykjavíkur og Mílu ehf um að reka samræmt og samtengt landupplýsingakerfi fyrir alla borgina. Landupplýsingar á Umhverfis- og Skipulagssviði eru í forsvari fyrir verkefnið, annast rekstur þess og veita allar upplýsingar um það (usk_lukr@rvk.is).

Landupplýsingakerfi (einnig nefnd landfræðileg upplýsingakerfi) eru tölvukerfi ætluð til innsetningar, samtengingar og úrvinnslu á bæði myndrænum gögnum og textagögnum sem eiga það sameiginlegt að tengjast ákveðnum stöðum eða svæðum. Gagnasöfn LUKR eru mjög yfirgripsmikil og í stöðugum vexti. Þau skiptast í mörg svonefnd gagnaþemu sem hvert um sig geymir upplýsingar um ákveðna tegund landupplýsinga, til dæmis byggingar, lóðamörk, hæðarlínur, götukanta og fleira.

Upplýsingunum má skipta í grafískar upplýsingar og tengdarupplýsingar eða eigindir. Útlínur húss með staðsetningum í hnitakerfi borgarinnar eru dæmi um hið fyrrnefnda en ýmsar upplýsingar sem tengjast húsinu eru dæmi um hið síðarnefnda.

Á Netinu er almenningi í gegnum Borgarvefsjá veittur ókeypisaðgangur að miklu safni upplýsinga úr LUKR á einfaldan og aðgengilegan hátt (www.borgarvefsja.is). Með því að velja þar útprentunarhnapp má vista gögnin og setja inn í önnur forrit til frekari vinnslu.

Hægt er að sækja heilu þemun á shape-formi, sem töflu (csv) eða KML á vef fyrir gjaldfrjáls gögn LUKR.Einnig er hægt að velja sér smærri svæði og mismunandi skráarsnið (SHAPE, File Geodatabase, DWG, DXF, DGN) á úttektarkerfi LUKR (þó með því skilyrði að skrá sig inn gegnum island.is eða með auðkenni í síma).